|
 Í Miðnæturhlaupi Suzuki 2012 getur þú valið um að fá afhendan verðlaunapening þegar þú kemur í mark eða sleppa því. Gjaldið lækkar um 400 kr ef valið er að sleppa því að fá verðlaunapening.
Ódýrara þátttökugjald fæst með því að forskrá á netinu. Forskráningu lýkur á miðnætti 19.júní 2012.
| Vegalengd |
Forskráning á marathon.is til 19.júní 2012 |
Skráning á staðnum 21.júní 2012 |
| |
með medalíu |
án medalíu |
með medalíu |
án medalíu |
| Hálfmaraþon |
3.200 |
2.800 |
4.000 |
3.600 |
| 10 km hlaup |
2.400 |
2.000 |
3.200 |
2.800 |
| 5 km hlaup |
2.000 |
1.600 |
2.800 |
2.400 |
Athugið að þátttökugjöld verða ekki endurgreidd.
Að vanda verður öllum þátttakendum boðið frítt í Laugardalslaugina eftir hlaupið. Númer hlaupsins gildir sem aðgöngumiði. Hleypt verður ofan í laugina um leið og fyrstu hlauparar hafa lokið hlaupinu. Búningsaðstaða er í Laugardalslauginni en þátttakendur verða að sýna hlaupanúmer til að fá aðgang.
Powerade drykkir og vatn verða í boði Vífilfells.
Vinsamlega athugið að merkt hlaupaleið er eingöngu ætluð keppendum. Ekki er heimilt að fylgja hlaupurum gangandi, hlaupandi, á hjóli eða öðrum farartækjum. Þátttakendum er ekki heimilt að hafa meðferðis hunda eða önnur gæludýr.

|