Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Hlaupahópar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 20. maí 2009 11:42

Hlaup.is
Það er hvetjandi og skemmtilegt að hlaupa í hópi fólks. Fjöldinn allur af skokkhópum er starfræktur víða um land og eru flestir þeirra opnir fyrir alla áhugasama. Á heimasíðunni hlaup.is má finna upplýsingar um þá skokkhópa sem hittast reglulega.

Hlaupahópur Íslandsbanka
Sjöunda árið í röð bíður Íslandsbanki upp á ókeypis hlaupahópa og hlaupaþjálfara í aðdraganda Reykjavíkurmaraþonsins. Hóparnir hittast á mánudögum og fimmtudögum, klukkan 17:30 við gula húsið hjá Íslandsbanka Kirkjusandi, í allt sumar fram að Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 21.ágúst.

Hlaupahópur Íslandsbanka hefur vaxið og dafnað undanfarin ár undir styrkri stjórn þrautreyndu þjálfaranna: Andrésar, Chahida, Stefáns Inga og Torfa. Það kostar ekkert að vera með og eru allir sem vilja hvattir til að hlaupa með og koma sér í form fyrir Reykjavíkurmaraþonið.

Í ár eru tveir hópar, þ.e. annar fyrir byrjendur og hinn fyrir lengra komna (þeir sem eitthvað hafa hlaupið áður). Líkt og undanfarin á verða hlaupaáætlanir sendar út vikulega til þeirra sem skrá sig á póstlistann Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

 
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði