|
| Vegalengdir |
jan-1.apr |
2.apr-1.júl |
2.júl-15.ágú |
17.ágúst skrán.hátíð |
|
|
|
|
|
| 3 km skemmtiskokk |
1.500 |
1.500 |
1.700 |
2.000 |
| 3 km barnagjald* |
1.000 |
1.000 |
1.000 |
1.200 |
| 10 km |
3.400 |
4.200 |
5.250 |
6.600 |
| 21,1 km |
4.200 |
5.250 |
6.300 |
8.300 |
| 42,2 km |
5.300 |
7.400 |
9.200 |
11.000 |
| Boðhlaup (2-4 saman) |
13.950 |
17.100 |
22.100 |
26.400 |
|
|
|
|
|
Athugið að þátttökugjaldið fer hækkandi eftir því sem nær dregur hlaupi. Verð miðast við einstakling nema í boðhlaupinu þar sem verð miðast við lið sem í geta verið 2-4 þátttakendur.
Fjölskylduafsláttur/barnaafsláttur - Skemmtiskokk og barnahlaup
- Fullorðnir og eitt barn borga fullt gjald en önnur börn borga 600 kr.
- Börn eru skilgreind sem 16 ára og yngri þ.e. fædd 1996 og síðar.
- Gildir fyrir börn í skemmtiskokk og Latabæjarhlaup en fullorðnir geta hlaupið hvaða vegalengd sem er.
- Fjölskylduafsláttur er veittur ef fjölskyldan skráir sig saman á netinu eða á skráningahátíð degi fyrir hlaup.
Greiða þarf þátttökugjald við skráningu og er skráning ekki gild nema gjaldið sé greitt. Ef greitt er með kreditkorti klárast skráning strax og fær sá sem skráir sendan tölvupóst því til staðfestingar um leið og greiðsla er móttekin. Sé valið að greiða með millifærslu fæst staðfesting eigi síðar en næsta virka dag fyrir kl.16 eftir að greiðsla berst.
Við skráningu í hlaup á vegum Reykjavíkurmaraþons þurfa þátttakendur að haka við að þeir samþykki skilmála hlaupsins. Ef ekki er hakað í samþykki fyrir skilmálum er ekki hægt að skrá sig í hlaupið. Smellið hér til að skoða skilmálana.
Þátttökugjöld í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fást ekki endurgreidd og ekki er hægt að gera nafnabreytingu á skráningu.
Innifalið í þátttökugjöldum Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka er meðal annars rásnúmer, leiga á tímatökuflögu og tímataka í keppnisvegalengdum, þátttökuverðlaun, stuttermabolur, Barilla pastaveisla á skráningarhátíð, sundferð í einhverja af sundlaugum Reykjavíkur, drykkir frá Powerade í marki og á drykkjarstöðvum.
ÍTR býður öllum þátttakendum í sund í sundlaugum Reykjavíkur á hlaupadaginn eða daginn eftir. Sérstakur aðgöngumiði fylgir keppnisgögnum sem þarf að afhenda í sundlaugunum.
Nánari upplýsingar um vegalengdir og aldurstakmörk í vegalengdir má finna með því að smella hér.
Breyting á vegalengd
Þau sem vilja breyta um vegalengd eftir að skráningu er lokið geta gert það á "mínum síðum". Til að skrá sig inn á "mínar síður" þarf að nota notendanafnið og lykilorðið sem viðkomandi fékk sent með tölvupósti við skráningu í hlaupið. Greiða þarf fyrir mismun á verði vegalengda ef farið er í dýrari vegalengd. Ekki þarf að greiða breytingagjald. Allar nánari upplýsingar og aðstoð eru veittar í gegnum tölvupóstfangið
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
|