|
Mánudagur, 07. desember 2009 14:24 |
|
Þann 20.ágúst er skráningarhátíð Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka. Þann dag fá allir þátttakendur afhent keppnisgögn. Meðal annars þátttökunúmer, tímatökuflögu í skóinn og bol. Einnig verður hægt að skrá sig á skráningarhátíðinni. Upplýsingar um opnunartíma og staðsetningu verða birtar þegar nær dregur hlaupi.
Öllum þátttakendum í Reykjavíkurmaraþoni er boðið í pastaveislu á vegum Barilla þennan dag. Til þess að fá aðgang þarf að framvísa keppnisnúmeri. Þau sem áhuga hafa á að kaupa sérstaklega pastamáltíð (til dæmis fyrir gesti) þurfa að greiða 500 krónur.
Hægt er að leigja bása á skráningarhátíðinni til að kynna heilsutengda starfsemi og vörur. Vinsamlega hafið samband á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
til að fá nánari upplýsingar.
Skemmtilegir og fræðandi fyrirlestrar verði í boði á skráningarhátíðinni eins og undanfarin ár. Nánari upplýsingar um fyrirlesara verða birtar þegar nær dregur hlaupi.
|