Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Almennar upplýsingar
Skráning
Reglur
Miðlar
Hlaupaleiðin
Úrslit
Laugavegurinn 2013
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði

Verðskrá 2012 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

 

   Janúar til mars        Apríl til júní   
Þátttökugjald     29.900 41.900
Rúta hlaupsins 12.000 12.000


Upplýsingar um verð morgunverðar og heitrar máltíðar í Þórsmörk koma síðar.


Innifalið í þátttökugjaldi

  • Brautar- og öryggisgæsla.
  • Drykkir á drykkjarstöðvum í Hrafntinnuskeri, Álftavatni, Emsturm, Ljósá.
  • Salernisaðstaða í Hrauneyjum,Landmannalaugum, Hrafntinnuskeri, Álftavatni, Emsturm, Húsadal.
  • Flutningur á farangri í Bláfjallakvísl og í Húsadal.
  • Langerma bolur.
  • Mittispoki undir rusl.
  • Þátttökuverðlaun, sigurverðlaun, aldursflokkaverðlaun, sveitaverðlaun.
  • Sturtur og búningsaðstaða í Þórsmörk.
  • Læknir og hjúkrunarfólk ef á þarf að halda í Húsadal
  • Tímataka og númer.
  • Upplýsingar.
  • Flutningur til byggða fyrir þá sem ekki ná tímamörkum.


Ekki innifalið í þátttökugjaldi

Rútuferðir til og frá Reykjavík, morgunverður í Hrauneyjum og heit máltíð eftir hlaup er ekki innifalið í þátttökugjaldinu. Tekið verður á móti pöntunum og greiðslu fyrir þessa þjónustu þegar nær dregur hlaupi. Verð mun liggja fyrir fljótlega.


Heitur matur eftir hlaup

Ferðafélag Íslands er nýr staðahaldari í Húsadal og rekur þar alla aðstöðu. Ferðafélagið mun selja  mat eftir hlaupið og verður tekið á móti pöntunum og greiðslu fyrir það síðar. Einnig verður hægt að kaupa mat fyrir aðstandendur.


Greiðslufyrirkomulag

Þátttökugjald er greitt með VISA eða MasterCard kreditkorti í gegnum skráningarvef á marathon.is. Einnig er hægt að velja um að greiða þátttökugjaldið með millifærslu. Aðstoð við skráningu er veitt í gegnum netfangið  Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  eða í síma 535 3700.


Endurgreiðsla

Endurgreitt er 50% af þátttökugjaldi ef þess er óskað fyrir 1.júlí 2012. Til að fá endurgreitt þarf að senda tölvupóst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.  og gefa upp fullt nafn, kennitölu, upplýsingar um bankareikning og símanúmer, auk rafrænnar greiðslukvittunar sem berst á þitt netfang við skráningu. Upplýsingarnar þurfa að berast fyrir 31.ágúst 2012 en eftir þann tíma falla úr gildi beiðnir um endurgreiðslu þátttökugjalds.  Hlaupari sem skráir sig úr Laugavegshlaupinu getur ekki fengið skráningargögn afhend. Frá og með 1.júlí 2012 fæst ekki endurgreiðsla.

 
Borði
Borði