| Skilmálar |
|
|
|
|
Við skráningu í hlaup á vegum Reykjavíkurmaraþons þurfa þátttakendur að haka við að þeir samþykki skilmála hlaupsins. Ef ekki er hakað í samþykki fyrir skilmálum er ekki hægt að skrá sig í hlaupið. Smellið hér til að skoða skilmálana.
Ekki er hægt að breyta skráningu úr einu nafni yfir í annað. Skráður þátttakandi er ábyrgur fyrir hlaupanúmeri og öðrum gögnum sem honum hefur verið úthlutað. Honum er ekki heimilt að láta það öðrum í té, til þátttöku í hlaupinu. Sá sem hleypur með númer sem ekki er skráð á hann af mótshaldara, er ekki gildur þátttakandi.
Endurgreitt er 14.950 kr (sem nemur 50% af þátttökugjaldi) ef þess er óskað fyrir 1.júlí 2012. Til að fá endurgreitt þarf að senda tölvupóst á netfangið Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og gefa upp fullt nafn, kennitölu, upplýsingar um bankareikning og símanúmer, auk rafrænnar greiðslukvittunar sem berst á þitt netfang við skráningu. Upplýsingarnar þurfa að berast fyrir 31.ágúst 2012 en eftir þann tíma falla úr gildi beiðnir um endurgreiðslu þátttökugjalds. Hlaupari sem skráir sig úr Laugavegshlaupinu getur ekki fengið skráningargögn afhend. Frá og með 1.júlí 2012 fæst ekki endurgreiðsla.
Smellið hér til að skoða reglur hlaupsins. |














