Heim flag

  • Skráning í fullum gangi

    Skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer 24.ágúst 2013 er í fullum gangi. Hlauparar eru hvattir til að skrá sig tímanlega því verðið hækkar eftir því sem nær dregur hlaupi. Smelltu hér til að skrá þig til þátttöku. 
  • 30 ára afmæli

    Reykjavíkurmaraþon fagnar 30 ára afmæli árið 2013 en 30. hlaupið fer fram laugardaginn 24.ágúst. Fyrsta Reykjavíkurmaraþonið fór fram árið 1984 en þá tóku 214 hlauparar frá átta löndum þátt í hlaupinu. Árið 2012 tóku 13.410 þátt í hlaupinu og hefur fjöldinn farið ört vaxandi undanfarin ár.

  • Tæpum 46 milljónum safnað

    Hlauparar í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2012 söfnuðu tæpum 46 milljónum til góðgerðamála. Þau félög sem safnaðist mest fyrir voru Kraftur -  3,1 milljón, Krabbameinsfélag Íslands, 3 milljónir, og Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna, 2,3 milljónir. 

  • Gjafabréf

    Gjafabréf Reykjavíkurmaraþons er góður kostur fyrir þau sem vilja gefa ávísun á skemmtilega upplifun og hvatningu til aukinnar hreyfingar. Gjafabréfið gildir í fjögur ár sem greiðsla í Miðnæturhlaup Suzuki, Laugavegshlaup og/eða Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka. 

Glæsilegum árangri í áheitasöfnun fagnað

Kari Steinn Viktor Snaer og IngvarÍ gær þriðjudaginn 11. september kl. 17:00-18:00 var haldin uppskeruhátíð áheitasöfnunar Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 2012. Það var aðalstyrktaraðili hlaupsins, Íslandsbanki, sem bauð til hátíðarinnar í höfuðstöðvum sínum á Kirkjusandi.

 

Á hátíðinni komu saman fulltrúar góðgerðafélaga, hlauparar og skipuleggjendur hlaupsins til að fagna góðum árangri áheitasöfnunar Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka sem fram fór á hlaupastyrkur.is. Í ár söfnuðust alls 45.987.154 krónur til 130 góðgerðafélaga. Þetta er 5% hærri upphæð en safnaðist í fyrra þegar met var slegið í áheitasöfnun og því var rík ástæða til að fagna.

Þau félög sem safnaðist mest fyrir voru Kraftur - stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendur, 3,1 milljón, Krabbameinsfélag Íslands, 3 milljónir, og Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna, 2,3 milljónir. Tæplega 80 af þeim 133 félögum sem tóku þátt í söfnuninni fengu meira en 100.000 krónur í sinn hlut og tíu félög fengu meira en milljón. 

Rúmlega 30% þeirra hlaupara sem tóku þátt í áheitavegalengdum Reykjavíkurmaraþons skráðu sig á hlaupastyrkur.is og söfnuðu áheitum. Um er að ræða 3.334 hlaupara sem fengu alls 17.458 áheit.

Uppskeruhátíð áheitasöfnunarinnar

Á morgun, þriðjudaginn 11. september kl. 17:00-18:00, verður haldin uppskeruhátíð áheitasöfnunar Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 2012. Það er Íslandsbanki, aðalstyrktaraðili hlaupsins, sem býður hlaupurum, góðgerðafélögum og skipuleggjendum hlaupsins í höfuðstöðvar sínar á Kirkjusandi. 

Markmiðið með hátíðinni er að gefa þessum aðilum færi á að hittast og fagna góðum árangri saman. Farið verður yfir tölfræði áheitasöfnunarinnar, boðið upp á lifandi tónlist og hollar og góðar veitingar. Þá fá góðgerðafélögin afhendar upplýsingar um áheit og uppgjör.

Allir eru velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

Um Reykjavíkurmaraþon

Reykjavíkurmaraþon var stofnað árið 1984.  Frá 2003 hefur Reykjavíkurmaraþon verið í umsjón Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR) sem eru samtök íþróttafélaganna í Reykjavík.  Á vegum Reykjavíkurmaraþons eru árlega haldin þrjú hlaup: Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka, Laugavegurinn - Ultra Maraþon og Miðnæturhlaup Suzuki. Reykjavíkurmaraþon fagnar 30 ára afmæli árið 2013.