|
Laugardagur, 14. ágúst 2010 09:05 |
|
Í vor sendi Reykjavíkurmaraþon viðhorfskönnun til hlaupara sem tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010. Fjölmargir tóku þátt í könnuninni og þökkum við þeim kærlega fyrir að hjálpa okkur að gera gott hlaup betra.
Það kom skýrt fram í niðurstöðum könnunarinnar að hlaupara í maraþoni og hálfmaraþoni vildu sleppa við að hlaupa um gámasvæði Eimskips við Sundahöfn. Hlaupaleiðinni í þessum vegalengdum hefur því verið breytt á þann veg að hlaupið er um Skarfagarð sem er viðlegukantur skemmtiskipa í Reykjavík og Vatnagarða.
Aðrar hlaupaleiðir eru óbreyttar. Smellið hér til að skoða kort af hlaupaleiðum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010.

|
|
|
Fimmtudagur, 05. ágúst 2010 10:17 |
|
Skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer 21.ágúst næstkomandi er í fullum gangi hér á marathon.is. Nú hafa um 2500 skráð sig til þátttöku sem er um 5% fleiri en á sama tíma í fyrra.
Um 1900 Íslendingar hafa skráð sig til þátttöku og 600 frá öðrum löndum. Skráning erlendra þátttakenda fer rólegra af stað heldur en í fyrra og eru um 20% færri skráðir nú heldur en á sama tíma í fyrra.
Smellið hér til að skrá þátttakendur í hlaupið. Greiða þarf með kreditkorti og fá þátttakendur sendan tölvupóst með staðfestingu á skráningu eftir að greiðsla hefur farið fram. Þau sem ekki hafa kreditkort geta sent tölvupóst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
til að fá aðstoð. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 5 af 32 |