|
Miðvikudagur, 18. ágúst 2010 00:34 |
|
Söfnun áheita fyrir góðgerðafélög í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka hefur gengið vonum framar og eru áheit á keppendur í gegnum vefinn hlaupastyrkur.is nú þegar orðin rúmlega 11,2 milljónir króna, sem er meira en heildar áheit voru fyrir hlaupið í fyrra. Hlaupið fer fram þann 21. ágúst næstkomandi en hægt er að heita á hlaupara til miðnættis 23.ágúst.
Íslandsbanki og Reykjavíkurmaraþoni kynntu í sumar nýjan áheitavef, hlaupastyrkur.is, sem hlauparar nýta til að safna áheitum hjá vinum og vandamönnum. Þar geta allir sem eru skráðir í Reykjavíkurmaraþonið og ætla sér að safna áheitum stofnað sína eigin síðu sem vinir og vandamenn geta heimsótt og heitið á hlauparann á einfaldan hátt. Vefurinn hefur notið mikilla vinsælda meðal hlaupara og margir nýta síðuna á skemmtilegan hátt til að safna áheitum. Til dæmis hafa nokkrir keppenda náð að safna um og yfir 200 þúsund hver frá einstaklingum og fyrirtækjum til styrktar góðu málefni.
|
|
|
Sunnudagur, 15. ágúst 2010 09:46 |
|
Í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010 býðst hlaupurum í 10 km og hálfmaraþoni aðstoð við að ná hraðamarkmiðum sínum. Sex hraðastjórar munu hlaupa áður nefndar vegalengdir á ákveðnum jöfnum hraða. Þeir verða í merktum vestum og með blöðrur til að hlauparar geti fylgt þeim.
Fyrst var boðið uppá hraðastjóra í Reykjavíkurmaraþoninu 2009, þá í 10 km hlaupinu. Mældist þessi nýjung mjög vel fyrir og verður leikurinn því endurtekinn í ár, bæði í hálfu maraþoni og 10 km hlaupi.
Hraðastjórarnir sem eru allir vanir hlauparar munu hlaupa á eftirtöldum tímum:
10 km hlaup
| 40 mínútur |
Birgir Sævarsson |
| 45 mínútur |
Þorlákur Jónsson |
| 50 mínútur |
Þóra Björg Magnúsdóttir |
| 55 mínútur |
Sigrún Erlendsdóttir |
| 60 mínútur |
Borghildur Valgeirsdóttir |
Hálfmaraþon
| 1 klst og 45 mínútur |
Ingólfur Arnarsson |

|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 4 af 32 |