|
Föstudagur, 20. ágúst 2010 06:28 |
|
Það koma margir einstaklingar, hópar og fyrirtæki að því að skapa góða stemningu á hlaupaleiðinni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka næstkomandi laugardag.
Íslandsbanki verður að venju með hressandi uppákomu við útibú sín á Eiðistorgi og við Kirkjusand ásamt því að tónlist í boði Suzuki verður við enda Vatnagarða. Þá verður stórskemmtileg trommusveit, Sláttuvélin, við Lindarbrautina í boði Powerade.
Olís hefur góðfúslega gefið leyfi fyrir uppákomum á tveimur bensínstöðvum sínum. Nokkrir hressir hlauparar úr skokkhóp Fjölnis sem eru í hljómsveit saman, verða á bensínstöð Olís við Skúlagötu. Samskip lánar pallbíl sem félagarnir spila uppá. Þá mætir Ólafur Guðmundsson eins og undanfarin ár á tónlistartrukknum sínum og hækkar græjurnar í botn á bensínstöð Olís við Ánanaust.
Það er orðin hefð hjá mörgum þeim góðgerðafélögum, sem hægt er að safna fyrir í tengslum við Reykjavíkurmaraþonið, að mæta útá brautina og hvetja hlaupara. Með þessu vilja félögin þakka hlaupurum fyrir stuðninginn.
Á marksvæðinu í Lækjargötu mun Óli Palli sjá um að spila tónlist og Dísa í World Class sér um að hita upp skemmtiskokkara eins og undanfarin ár. Dísa er ein af tryggustu sjálfboðaliðum Reykjavíkurmaraþons og hefur séð um upphitun fyrir skemmtiskokkið í mörg ár.
Skemmtistöðvar Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 2010 má sjá merktar inná kortið hér að neðan ásamt góðum hvatningarstöðum fyrir fjölskyldur og vini hlaupara.

|
|
|
Fimmtudagur, 19. ágúst 2010 12:08 |
|
Búið er að loka fyrir skráningu í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010 á netinu. Þeir sem ekki náðu að skrá sig á netinu geta skráð sig á skráningarhátíð á morgun föstudaginn 20.ágúst milli kl. 10 og 19.
Skráningarhátíð Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 2010 fer fram í stúkubyggingu Laugardalsvallar. Afhending gagna fyrir Latabæjarhlaup verður í næsta húsi við Laugardalsvöllinn, Félagsheimili Þróttar í Laugardal. Afgreiðsla fer fram frá kl.10:00-19:00. Athugið að um er að ræða nýja staðsetningu frá fyrri árum.
Mikið verður um að vera á skráningarhátíðinni. Boðið verður uppá nokkra spennandi fyrirlestra og frá klukkan 16 verður pastaveisla fyrir alla þátttakendur í boði Barilla. Auk þess munu ýmsir aðilar kynna heilsutengda starfsemi og vörur. Frá klukkan 15 verður sérstök íþróttadagskrá fyrir börn við félagshús Ármanns og Þróttar. Smellið hér til að skoða dagskrá skráningarhátíðarinnar.
Þó að búið sé að loka fyrir skráningu í hlaupið á vefnum verður áfram hægt að heita á hlaupara á vefsíðunni hlaupastyrkur.is. Opið er fyrir skráningu áheita til miðnættis mánudaginn 23.ágúst.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 3 af 32 |