Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Reykjavíkurmaraþon
Villa í auglýsingu um Latabæjarhlaupið Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 19. ágúst 2009 10:38

Þau leiðu mistök urðu í auglýsingu um Latabæjarhlaupið sem birtist í Fréttablaðinu og Morgunblaðinu í morgun að rangar upplýsingar komu fram um afslátt.

Eftirfarandi eru réttar upplýsingar um afslátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2009

  • Fullorðnir og eitt barn borga fullt gjald en önnur börn borga 500 kr.
  • Börn eru skilgreind sem 12 ára og yngri þ.e. fædd 1997 og síðar. 
  • Gildir fyrir fjölskyldur sem eru skráðar samkvæmt þjóðskrá með sama heimilisfang.
  • Gildir fyrir börn í skemmtiskokk og Latabæjarhlaup en fullorðnir geta hlaupið hvaða vegalengd sem er.

Innilega er beðist velvirðinga á þessum mistökum.

 
Forskráningu lýkur í dag Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 19. ágúst 2009 06:30

Á miðnætti í kvöld lýkur forskráningu í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka á netinu. Það fer því hver að verða síðastur að skrá sig í hlaupið á forskráningarverðinu. Smelltu hér til að skrá þig.


Föstudaginn 21.ágúst þurfa allir þátttakendur í hlaupinu að koma á skráningarhátíðina í Laugardalshöll og sækja keppnisgögn (bol, númer o.fl.). Þann dag verður einnig hægt að skrá sig í hlaupið. Laugardalshöllin er opin frá kl.10:00-19:00.


Þrátt fyrir að skráningu hlaupara ljúki á netinu í kvöld verður áfram hægt að heita á hlaupara. Opið verður fyrir áheit til miðnættis mánudaginn 24.ágúst. Smelltu hér til að heita á hlaupara.

 
<< Fyrsta < Fyrri 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 Næsta > Síðasta >>

Síða 20 af 32
Borði
Borði
Borði

Kort