|
Laugardagur, 21. ágúst 2010 09:35 |
|
Um 6000 hlauparar eru lagðir af stað í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010. Tæplega 1.900 manns fóru af stað í heilu og hálfu maraþoni í morgun kl.8:40. Það var Menntamálaráðherra Katrín Jakobsdóttir sem ræsti hlaupara af stað. Um 3.700 10 km hlauparar fóru síðan af stað kl.9:30 en aldrei hafa fleiri verið skráðir í 10 km hlaup Reykjavíkurmaraþons. Formaður ÍTR Diljá Ámundadóttir ræsti hlauparana af stað.
Hægt er að fylgjast með gengi hlaupara í keppnisvegalengdunum í „beinni útsendingu“. Tímatökuflagan sem keppnishlauparar þurfa að festa í skóreimarnar eða við ökklann (boðhlaup) gerir þetta kleift. Hjá maraþonhlaupurunum og boðhlaupsliðunum mun sjást millitími eftir 10 km, 20 km, 21,1 km, 30 km og 40 km. Að lokum birtist síðan tími þeirra þegar þeir koma í mark. Upplýsingar um hlaupara í hálfmaraþoni birtist á sama hátt nema þeir hafa aðeins einn millitíma, eftir 10 km. Hlaupatími þátttakenda í 10 km hlaupinu birtist um leið og þeir koma í markið. Um er að ræða bráðabirgðaúrslit sem síðan munu birtast staðfest á marathon.is þegar tímatöku lýkur um kl. 14:40.
SMELLIÐ HÉR til að fylgjast með hlaupurum í beinni útsendingu.
Næsta ræsing er kl.12:00 þegar skemmtiskokkararnir sem hlaupa 3 km fara af stað. Áætlað er að fjöldi þeirra verði rúmlega 2.000 en skráning í skemmtiskokkið stendur ennþá yfir. Borgarstjórinn í Reykjavík, Jón Gnarr, ræsir skemmtiskokkarana af stað.
|
|
|
Laugardagur, 21. ágúst 2010 00:45 |
|
Dagurinn sem margir hafa beðið eftir lengi er runninn upp. Í dag laugardaginn 21.ágúst fer Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fram í miðborginni.
Dagskrá dagsins í Lækjargötu 08:40 Maraþon, hálfmaraþon og boðhlaup ræst 09:30 10 km hlaup ræst 11:45 Upphitun fyrir skemmtiskokk 12:00 Skemmtiskokk (3km) ræst 14:40 Tímatöku hætt
Dagskrá Latabæjarhlaupsins í Hljómskálagarði Upphitun við rásmark 5 mínútum fyrir hvert hlaup Kl. 13:30 – Gul leið (5 ára) – ræst í 700 m hlaup kl. 13:30 – Blá leið (7 til 8 ára) – ræst í 1,5 km hlaup kl. 13:40 – Rauð leið (4 ára) – ræst í 700 m hlaup kl. 13:50 – Græn leið (0-3 ára) – ræst í 700 m hlaup kl. 13:50 – Appelsínugul leið (6 ára) – ræst í 1,5 km hlaup kl. 14:15 – Að loknu hlaupi verður skemmtidagskrá í suðurenda Hljómskálagarðsins
Sjá nánar um Latabæjarhlaupið HÉR.
Þau sem ekki náðu að skrá sig á netinu eða á skráningarhátíð geta skráð sig í dag. Skráning í Latabæjarhlaupið fer fram í Hljómskálagarðinum frá kl.12:30 en skráning í aðrar vegalengdir fer fram í Menntaskólanum í Reykjavík frá kl.7:30.
Njótið dagsins!
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 2 af 32 |