|
Mánudagur, 26. apríl 2010 13:20 |
|
Í ár verður í fyrsta sinn í sögu Reykjavíkurmaraþons boðið uppá boðhlaup þar sem tveir til fjórir hlauparar geta skipt á milli sín heilu maraþoni. Hlaupin er sama leið og maraþonhlaupararnir hlaupa, byrjað og endað á sama stað.
Ef fjórir hlaupa saman þá hlaupa fyrstu þrír 10 km en síðasti hleypur 12,2 km. Í liði sem samanstendur af tveimur hlaupurum hleypur sá fyrsti 20 km en sá síðari 22,2 km.
Boðhlaupið getur hentað fjölbreyttum hópi fólks. Þeir sem hafa hlaupið hálft maraþon en treysta sér ekki í heilt maraþon geta t.d. hlaupið 30 km og fengið félaga til að hlaupa síðustu 12,2 km. Einnig getur boðhlaupið verið hentugt fyrir þá sem vilja hlaupa 10 km en langar að hlaupa aðra leið heldur en 10 km hlaupararnir fara. Þá getur fjölskylda maraþonhlaupara einnig sýnt sínum hlaupara stuðning með því að skiptast á að hlaupa við hlið hans og taka þátt í boðhlaupi um leið.
Skráning fer þannig fram að einn aðili skráir alla liðsmenn í einu og greiðir um leið eitt gjald. Skrá þarf hvaða hlaupari liðsins hleypur hvaða hluta leiðarinnar. Hvert lið borgar eitt gjald óháð fjölda hlaupara í liði.
Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um boðhlaupið. |
|
|
Fimmtudagur, 22. apríl 2010 16:05 |
|
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka verður annað sumarið í röð hluti af Powerade mótaröðinni. Fimm sumarhlaup í Reykjavík mynda mótaröðina en það eru frjálsíþróttafélögin í Reykjavík, Reykjavíkurmaraþon og Powerade sem standa að henni.
Hlaupin fimm á Powerade mótaröðinni 2010 eru:
VÍÐAVANGSHLAUP ÍR Sumardaginn fyrsta 22.apríl, 5 km
FJÖLNISHLAUPIÐ 20.maí, 10 km og 1,8 km skemmtiskokk
MIÐNÆTURHLAUP POWERADE 23.júní, 10 km – 5 km – 3 km
ÁRMANNSHLAUPIÐ 13.júlí, 10 km
REYKJAVÍKURMARAÞON ÍSLANDSBANKA 21.ágúst, 42,2 km – 21,1 km – 10km – 42,2 km boðhlaup – 3 km
Víðavangshlaup ÍR fór fram í dag og voru þau Björn Margeirsson og Íris Anna Skúladóttir fyrst í mark. Nánari upplýsingar um úrslit Víðavangshlaups ÍR og Powerade mótaröðina 2010 má finna með því að smella hér. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 10 af 32 |