|
Miðvikudagur, 19. maí 2010 13:05 |
|
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka verður annað sumarið í röð hluti af Powerade mótaröðinni. Fimm sumarhlaup í Reykjavík mynda mótaröðina en það eru frjálsíþróttafélögin í Reykjavík, Reykjavíkurmaraþon og Powerade sem standa að henni.
Næsta hlaup á Powerade mótaröðinni 2010 er Fjölnishlaupið sem fer fram í Grafarvogi 20.maí næstkomandi.
Í Fjölnishlaupinu er boðið upp á 10 km hlaup með tímatöku og 1,8 km skemmtiskokk án tímatöku. 10 km hlaupið er ræst kl. 20:00 og skemmtiskokkið 5 mínútum síðar. Hlaupið er ræst frá Fjölnisvellinum (við Grafarvogslaug) og hlaupin hefðbundin leið út Grafarvoginn, gegnum Bryggjuhverfið, inn fyrir Elliðaárós og vestur yfir brúna við Geirsnef að snúningspunkti. Sama leið til baka. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar.
Forskráning í hlaupið er hafin á hlaup.com. Þátttökugjald er lægra í 10 km hlaupið ef forskráð er á netinu. Smelltu hér til að skrá þig. |
|
|
Fimmtudagur, 06. maí 2010 15:08 |
|
Það er ánægjulegt frá því að segja að þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni 2009 voru ánægðir með að fá bol þegar þeir skráðu sig í hlaupið. Í viðhorfskönnun sem send var til þátttakenda í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2009 í mars síðastliðnum var m.a. spurt hversu sammála eða ósammála hlauparar væru fullyrðingunni: „Ég er ánægð(ur) með að bolur sé innifalinn í skráningargjaldinu“. Af þeim 1554 sem tóku könnunina voru 64% frekar sammála eða sammála fullyrðingunni en 21% voru hlutlausir. Aðeins 15% hlaupara voru frekar ósammála eða ósammála því að það væri ánægjulegt að bolur væri innifalinn í skráningargjaldinu.
Niðurstaða könnunar Reykjavíkurmaraþons er ekki í takt við könnun sem var í gangi á hlaup.is um nokkuð langt skeið. Þar kom fram að 73% þeirra sem heimsækja síðuna vilja sleppa því að fá bol og borga lægra skráningargjald í staðin.
Frá upphafi Reykjavíkurmaraþons árið 1984 hefur bolur verið innifalinn í skráningargjaldi hlaupsins. Í ár verður í boði bómullarbolur fyrir allar vegalengdir nema maraþon þar sem bolur úr pólýester er innifalinn. Til að bolurinn passi örugglega er um að gera að mæla uppáhalds bolinn sinn og bera saman við hvaða stærð það sé í bolum Reykjavíkurmaraþons. Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um boli og bolastærðir.
Á næstu dögum má vænta fleiri frétta af niðurstöðum úr viðhorfskönnun Reykjavíkurmaraþons. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 9 af 32 |