Heim flag

  • Skráning í fullum gangi

    Skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer 24.ágúst 2013 er í fullum gangi. Hlauparar eru hvattir til að skrá sig tímanlega því verðið hækkar eftir því sem nær dregur hlaupi. Smelltu hér til að skrá þig til þátttöku. 
  • 30 ára afmæli

    Reykjavíkurmaraþon fagnar 30 ára afmæli árið 2013 en 30. hlaupið fer fram laugardaginn 24.ágúst. Fyrsta Reykjavíkurmaraþonið fór fram árið 1984 en þá tóku 214 hlauparar frá átta löndum þátt í hlaupinu. Árið 2012 tóku 13.410 þátt í hlaupinu og hefur fjöldinn farið ört vaxandi undanfarin ár.

  • Tæpum 46 milljónum safnað

    Hlauparar í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2012 söfnuðu tæpum 46 milljónum til góðgerðamála. Þau félög sem safnaðist mest fyrir voru Kraftur -  3,1 milljón, Krabbameinsfélag Íslands, 3 milljónir, og Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna, 2,3 milljónir. 

  • Gjafabréf

    Gjafabréf Reykjavíkurmaraþons er góður kostur fyrir þau sem vilja gefa ávísun á skemmtilega upplifun og hvatningu til aukinnar hreyfingar. Gjafabréfið gildir í fjögur ár sem greiðsla í Miðnæturhlaup Suzuki, Laugavegshlaup og/eða Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka. 

Powerade mótaröðin 2010

Sumarið 2009 var Powerade mótaröð fimm sumarhlaupa sett á fót. Mótaröðin fékk mjög góðar viðtökur og heppnaðist vel. Því var ákveðið að halda samstarfinu áfram en það eru frjálsíþróttafélögin í Reykjavík, Reykjavíkurmaraþon og Powerade sem standa að mótaröðinni. 

Hlaupin fimm sem mynda Powerade mótaröðina 2010 eru:
 
VÍÐAVANGSHLAUP ÍR
Sumardaginn fyrsta 22.apríl, 5 km

FJÖLNISHLAUPIÐ
20.maí, 10 km og 1,8 km skemmtiskokk

MIÐNÆTURHLAUP POWERADE
23.júní, 10 km – 5 km – 3 km

ÁRMANNSHLAUPIÐ
13.júlí, 10 km

REYKJAVÍKURMARAÞON ÍSLANDSBANKA
21.ágúst, 42,2 km – 21,1 km – 10km – 42,2 km boðhlaup – 3 km


Glæsilegir ferðavinningar frá Iceland Express eru í boði fyrir flest stig samanlagt í hlaupunum fimm í karla og kvennaflokki. Auk þess verða veitt verðlaun fyrir stigahæstu hlauparana í fimm aldursflokkum. Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um stigakeppnina og hér um verðlaun.

Um Reykjavíkurmaraþon

Reykjavíkurmaraþon var stofnað árið 1984.  Frá 2003 hefur Reykjavíkurmaraþon verið í umsjón Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR) sem eru samtök íþróttafélaganna í Reykjavík.  Á vegum Reykjavíkurmaraþons eru árlega haldin þrjú hlaup: Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka, Laugavegurinn - Ultra Maraþon og Miðnæturhlaup Suzuki. Reykjavíkurmaraþon fagnar 30 ára afmæli árið 2013.