| Uppskeruhátíð áheitasöfnunar |
|
|
|
| Mánudagur, 05. september 2011 00:55 |
|
Miðvikudaginn 7.september kl. 17:00-18:00 verður haldin uppskeruhátíð áheitasöfnunar Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka. Hátíðin verður haldin í Ráðhúsi Reykjavíkur. Markmiðið með hátíðinni er að gefa góðgerðafélögunum, hlaupurum og skipuleggjendum hlaupsins færi á að hittast og fagna góðum árangri saman. Farið verður yfir tölfræði áheitasöfnunarinnar, boðið uppá lifandi tónlist og frískandi veitingar. Þá fá góðgerðafélögin afhendar upplýsingar um áheit og uppgjör. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. |























