| Áheitasöfnun gengur vel |
|
|
|
| Miðvikudagur, 18. ágúst 2010 00:34 |
|
Söfnun áheita fyrir góðgerðafélög í tengslum við Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka hefur gengið vonum framar og eru áheit á keppendur í gegnum vefinn hlaupastyrkur.is nú þegar orðin rúmlega 11,2 milljónir króna, sem er meira en heildar áheit voru fyrir hlaupið í fyrra. Hlaupið fer fram þann 21. ágúst næstkomandi en hægt er að heita á hlaupara til miðnættis 23.ágúst. Íslandsbanki og Reykjavíkurmaraþoni kynntu í sumar nýjan áheitavef, hlaupastyrkur.is, sem hlauparar nýta til að safna áheitum hjá vinum og vandamönnum. Þar geta allir sem eru skráðir í Reykjavíkurmaraþonið og ætla sér að safna áheitum stofnað sína eigin síðu sem vinir og vandamenn geta heimsótt og heitið á hlauparann á einfaldan hátt. Vefurinn hefur notið mikilla vinsælda meðal hlaupara og margir nýta síðuna á skemmtilegan hátt til að safna áheitum. Til dæmis hafa nokkrir keppenda náð að safna um og yfir 200 þúsund hver frá einstaklingum og fyrirtækjum til styrktar góðu málefni.
|






















