| Breytingar á hlaupaleiðum |
|
|
|
| Laugardagur, 14. ágúst 2010 09:05 |
|
Í vor sendi Reykjavíkurmaraþon viðhorfskönnun til hlaupara sem tóku þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010. Fjölmargir tóku þátt í könnuninni og þökkum við þeim kærlega fyrir að hjálpa okkur að gera gott hlaup betra. Það kom skýrt fram í niðurstöðum könnunarinnar að hlaupara í maraþoni og hálfmaraþoni vildu sleppa við að hlaupa um gámasvæði Eimskips við Sundahöfn. Hlaupaleiðinni í þessum vegalengdum hefur því verið breytt á þann veg að hlaupið er um Skarfagarð sem er viðlegukantur skemmtiskipa í Reykjavík og Vatnagarða. Aðrar hlaupaleiðir eru óbreyttar. Smellið hér til að skoða kort af hlaupaleiðum í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010. |























