| Boðhlaup - er það eitthvað fyrir þig? |
|
|
|
| Mánudagur, 28. júní 2010 14:01 |
|
Í ár verður í fyrsta sinn í sögu Reykjavíkurmaraþons boðið uppá boðhlaup þar sem tveir til fjórir hlauparar geta skipt á milli sín heilu maraþoni. Hlaupin er sama leið og maraþonhlaupararnir hlaupa, byrjað og endað á sama stað. Ef fjórir hlaupa saman þá hlaupa fyrstu þrír 10 km en síðasti hleypur 12,2 km. Í liði sem samanstendur af tveimur hlaupurum hleypur sá fyrsti 20 km en sá síðari 22,2 km. Boðhlaupið getur hentað fjölbreyttum hópi fólks. Þeir sem hafa hlaupið hálft maraþon en treysta sér ekki í heilt maraþon geta t.d. hlaupið 30 km og fengið félaga til að hlaupa síðustu 12,2 km. Einnig getur boðhlaupið verið hentugt fyrir þá sem vilja hlaupa 10 km en langar að hlaupa aðra leið heldur en 10 km hlaupararnir fara. Þá getur fjölskylda maraþonhlaupara einnig sýnt sínum hlaupara stuðning með því að skiptast á að hlaupa við hlið hans og taka þátt í boðhlaupi um leið. Skráning fer þannig fram að einn aðili skráir alla liðsmenn í einu og greiðir um leið eitt gjald. Skrá þarf hvaða hlaupari liðsins hleypur hvaða hluta leiðarinnar. Hvert lið borgar eitt gjald óháð fjölda hlaupara í liði. Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um boðhlaupið. Athugið að sveitakeppni tengist ekki boðhlaupinu. Boðið er uppá sveitakeppni í 10 km hlaupi, hálfmaraþoni og maraþoni. Konur og karlar geta myndað sveit saman en þeir sem eru í sömu sveit verða að hlaupa sömu vegalengd. Hlauparar skrá sig fyrst sem einstaklingar í hlaupið og tengja sig svo saman í sveit með sínum félögum í gegnum mínar síður. Sjá nánari upplýsingar um sveitakeppni hér. |






















