| Fjölmennt Miðnæturhlaup Powerade |
|
|
|
| Fimmtudagur, 24. júní 2010 10:00 |
|
Í gærkvöldi fór fram í blíðskaparveðri Miðnæturhlaup Powerade. Þetta er í 18. sinn sem Reykjavíkurmaraþon stendur fyrir hlaupinu en framkvæmdaaðilar hlaupsins í ár voru frjálsíþróttadeildir Fjölnis og Ármanns. Hlaupið í ár var það fjölmennasta til þessa með rétt um 1500 keppendum í þremur vegalengdum. Augljóst er af skráningum að fleiri hafa áhuga á lengri vegalengdunum, 5 og 10km, þar sem að það fækkaði verulega í 3 km skemmtiskokkinu. Sigurvegarar í 10 km hlaupinu voru Björn Margreirsson og Fríða Rún Þórðardóttir en í 5 km hlaupinu voru það Steinn Jóhannsson og Gerður Rún Guðlaugsdóttir sem urðu hlutskörpust. Smelltu hér til að skoða nánari úrslit. Myndir frá Miðnæturhlaupi Powerade 2010 eru komnar inná heimasíðu hlaupsins. |






















