| Powerade mótaröðin - Fjölnishlaupið |
|
|
|
| Miðvikudagur, 19. maí 2010 13:05 |
|
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka verður annað sumarið í röð hluti af Powerade mótaröðinni. Fimm sumarhlaup í Reykjavík mynda mótaröðina en það eru frjálsíþróttafélögin í Reykjavík, Reykjavíkurmaraþon og Powerade sem standa að henni. Næsta hlaup á Powerade mótaröðinni 2010 er Fjölnishlaupið sem fer fram í Grafarvogi 20.maí næstkomandi. Í Fjölnishlaupinu er boðið upp á 10 km hlaup með tímatöku og 1,8 km skemmtiskokk án tímatöku. 10 km hlaupið er ræst kl. 20:00 og skemmtiskokkið 5 mínútum síðar. Hlaupið er ræst frá Fjölnisvellinum (við Grafarvogslaug) og hlaupin hefðbundin leið út Grafarvoginn, gegnum Bryggjuhverfið, inn fyrir Elliðaárós og vestur yfir brúna við Geirsnef að snúningspunkti. Sama leið til baka. Smelltu hér til að fá nánari upplýsingar. Forskráning í hlaupið er hafin á hlaup.com. Þátttökugjald er lægra í 10 km hlaupið ef forskráð er á netinu. Smelltu hér til að skrá þig. |






















