| Bolir eða ekki bolir? |
|
|
|
| Fimmtudagur, 06. maí 2010 15:08 |
|
Það er ánægjulegt frá því að segja að þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni 2009 voru ánægðir með að fá bol þegar þeir skráðu sig í hlaupið. Í viðhorfskönnun sem send var til þátttakenda í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2009 í mars síðastliðnum var m.a. spurt hversu sammála eða ósammála hlauparar væru fullyrðingunni: „Ég er ánægð(ur) með að bolur sé innifalinn í skráningargjaldinu“. Af þeim 1554 sem tóku könnunina voru 64% frekar sammála eða sammála fullyrðingunni en 21% voru hlutlausir. Aðeins 15% hlaupara voru frekar ósammála eða ósammála því að það væri ánægjulegt að bolur væri innifalinn í skráningargjaldinu. Niðurstaða könnunar Reykjavíkurmaraþons er ekki í takt við könnun sem var í gangi á hlaup.is um nokkuð langt skeið. Þar kom fram að 73% þeirra sem heimsækja síðuna vilja sleppa því að fá bol og borga lægra skráningargjald í staðin. Frá upphafi Reykjavíkurmaraþons árið 1984 hefur bolur verið innifalinn í skráningargjaldi hlaupsins. Í ár verður í boði bómullarbolur fyrir allar vegalengdir nema maraþon þar sem bolur úr pólýester er innifalinn. Til að bolurinn passi örugglega er um að gera að mæla uppáhalds bolinn sinn og bera saman við hvaða stærð það sé í bolum Reykjavíkurmaraþons. Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um boli og bolastærðir. Á næstu dögum má vænta fleiri frétta af niðurstöðum úr viðhorfskönnun Reykjavíkurmaraþons. |






















