| Powerade mótaröðin 2010 farin af stað |
|
|
|
| Fimmtudagur, 22. apríl 2010 16:05 |
|
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka verður annað sumarið í röð hluti af Powerade mótaröðinni. Fimm sumarhlaup í Reykjavík mynda mótaröðina en það eru frjálsíþróttafélögin í Reykjavík, Reykjavíkurmaraþon og Powerade sem standa að henni. Hlaupin fimm á Powerade mótaröðinni 2010 eru: VÍÐAVANGSHLAUP ÍR FJÖLNISHLAUPIÐ MIÐNÆTURHLAUP POWERADE ÁRMANNSHLAUPIÐ REYKJAVÍKURMARAÞON ÍSLANDSBANKA Víðavangshlaup ÍR fór fram í dag og voru þau Björn Margeirsson og Íris Anna Skúladóttir fyrst í mark. Nánari upplýsingar um úrslit Víðavangshlaups ÍR og Powerade mótaröðina 2010 má finna með því að smella hér. |






















