| Viðhorfskönnun lokið |
|
|
|
| Mánudagur, 12. apríl 2010 14:59 |
|
Reykjavíkurmaraþon sendi út viðhorfskönnun til allra þátttakenda, 16 ára og eldri, í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2009 þriðjudaginn 30.mars. Einnig gátu áhugasamir lesendur heimasíðu Reykjavíkurmaraþons og aðdáendur Facebook síðu Reykjavíkurmaraþons tekið þátt. Markmiðið með könnuninni var að kanna viðhorf hlaupara til Reykjavíkurmaraþons með það fyrir augum að bæta hlaupið. Könnunin var tvískipt; einn hluti fyrir fylgdarmenn barna í Latabæjarhlaupinu 2009 og annar fyrir þá sem hlupu aðrar vegalengdir í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2009. Könnuninni lauk föstudaginn 9.apríl. Als tóku um 700 manns þátt í könnun um Latabæjarhlaupið og um 1600 manns þátt í könnun um aðrar vegalengdir. Reykjavíkurmaraþon þakkar fyrir góðar viðtökur og birtir fljótlega helstu niðurstöður könnunarinnar. |






















