|
Þriðjudagur, 30. mars 2010 15:26 |
|
Í dag var send út viðhorfskönnun Reykjavíkurmaraþons til allra þátttakenda í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2009. Markmiðið með könnuninni er að kanna viðhorf hlaupara til Reykjavíkurmaraþons með það fyrir augum að bæta hlaupið. Könnunin er tvískipt; einn hluti fyrir fylgdarmenn barna í Latabæjarhlaupinu 2009 og annar fyrir þá sem hlupu aðrar vegalengdir í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2009.
Könnunin var send til þeirra sem samþykktu við skráningu í hlaupið 2009 að fá tölvupóst frá Reykjavíkurmaraþoni um ýmis hlaupatengd málefni. Svör eru ekki rekjanleg til einstaklinga.
Ef þú fékkst ekki póst frá okkur en langar til að koma skoðun þinni á framfæri getur þú smellt á fyrirsagnir kannananna hér að neðan til að taka þátt. Athugið að aðeins er hægt að taka hverja könnun einu sinni í hverri tölvu.
Viðhorfskönnun - Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka (tekur u.þ.b. 4-5 mínútur að svara)
Viðhorfskönnun - Latabæjarhlaupið (tekur u.þ.b. 1-2 mínútur að svara)
Sendu póst á
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
ef þú hefur einhverjar spurningar, þarft aðstoð eða vilt koma ábendingum áleiðis.
|