|
Fimmtudagur, 24. september 2009 11:49 |
|
Í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka sem fram fór 22.ágúst síðastliðin áttu þátttakendur möguleika á að vinna fjöldan allan af verðlaunum. Allir hlauparar fengu verðlaunapening þegar þeir komu í mark auk þess sem dregnir voru út ferðavinningar og margt fleira. Smellið hér til að skoða upplýsingar um verðlaun í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2009.
Flest verðlaunanna voru afhend í Lækjargötunni strax eftir hlaup. Aldursflokkaverðlaun og verðlaun fyrir bestan árangur í sveitakeppni eru þó ekki afhent í Lækjargötunni vegna þess að yfirfara þarf öll úrslit og staðfesta áður en það er mögulegt. Fyrstu þrír hlauparar í hverjum aldursflokki unnu sér inn verðlaunagrip ásamt fyrstu þremur sveitunum í hverri vegalengd. Aldursflokka- og sveitaverðlaun geta hlauparar nálgast á skrifstofu Reykjavíkurmaraþons á Engjvegi 6 í Laugardal. Smelltu hér til að skoða úrslit Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 2009 og kanna hvort þú hafir unnið til verðlauna.
|