| Auðvelt að heita á hlaupara |
|
|
|
| Þriðjudagur, 18. ágúst 2009 15:30 |
|
Líkt og undanfarin ár geta hlauparar í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka hlaupið til styrktar góðum málefnum. Við skráningu í hlaupið hér á marathon.is geta hlauparar valið sér góðgerðafélag sem fær þá fjárhæð sem viðkomandi safnar. Hlauparar geta síðan farið á „mínar síður“ og þaðan sent vinum og vandamönnum áskorun um að heita á sig. Þannig fá hlauparar ennþá meiri hvatningu um að standa sig vel og klára hlaupið og leggja góðu málefni lið um leið. Það eru þó ekki aðeins vinir og vandamenn sem geta heitið á hlaupara því listi yfir alla sem hlaupa til góðs er birtur hér á marathon.is. Hver sem er sem hefur aðgang að tölvu og kreditkorti getur farið á heimasíðuna og heitið upphæð að eigin vali á þau málefni og/eða einstaklinga sem þeim lýst best á. Íslandsbanki mun eins og áður heita á starfsmenn sem taka þátt í Reykjavíkurmaraþoninu og renna áheitin óskipt til þeirra góðgerðafélaga sem starfsmenn kjósa að hlaupa fyrir. Sú breyting verður á áheitum bankans á starfsmenn að í ár verður greidd föst upphæð til starfsmanns m.v. þá vegalengd sem viðkomandi hleypur. Smellið hér til að kynna ykkur nánar góðgerðamálin.
|























