|
Mánudagur, 17. ágúst 2009 23:08 |
|
Í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2009 býðst 10 km hlaupurum aðstoð við að ná hraðamarkmiðum sínum. Fimm hraðastjórar sem munu hlaupa 10 km á ákveðnum jöfnum hraða verða í merktum vestum og með blöðrur til að hlauparar geti fylgt þeim. Hraðastjórarnir hittust í dag og skoðuðu góðar leiðir til að festa á sig blöðrur svo að hlauparar sjái þá vel og eigi auðvelt með fylgja þeim. Meðfylgjandi mynd var tekin af Jóhönnu Eiríksdóttur að prufa blöðrur í Hljómskálagarðinum (ljósmyndari Gunnar V. Andrésson).

Hraðastjórarnir sem eru allir vanir hlauparar munu hlaupa á eftirfarandi tímum: 40 mínútur – Birgir Sævarsson45 mínútur – Ingólfur Arnarsson50 mínútur – Elín Ruth Reed55 mínútur – Sigrún Erlendsdóttir60 mínútur – Jóhanna Eiríksdóttir Á skráningarhátíðinni í Laugardalshöll föstudaginn 21.ágúst verða hraðastjórar til viðtals kl.18.30.
|