Heim flag

  • Skráning í fullum gangi

    Skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer 24.ágúst 2013 er í fullum gangi. Hlauparar eru hvattir til að skrá sig tímanlega því verðið hækkar eftir því sem nær dregur hlaupi. Smelltu hér til að skrá þig til þátttöku. 
  • 30 ára afmæli

    Reykjavíkurmaraþon fagnar 30 ára afmæli árið 2013 en 30. hlaupið fer fram laugardaginn 24.ágúst. Fyrsta Reykjavíkurmaraþonið fór fram árið 1984 en þá tóku 214 hlauparar frá átta löndum þátt í hlaupinu. Árið 2012 tóku 13.410 þátt í hlaupinu og hefur fjöldinn farið ört vaxandi undanfarin ár.

  • Tæpum 46 milljónum safnað

    Hlauparar í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2012 söfnuðu tæpum 46 milljónum til góðgerðamála. Þau félög sem safnaðist mest fyrir voru Kraftur -  3,1 milljón, Krabbameinsfélag Íslands, 3 milljónir, og Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna, 2,3 milljónir. 

  • Gjafabréf

    Gjafabréf Reykjavíkurmaraþons er góður kostur fyrir þau sem vilja gefa ávísun á skemmtilega upplifun og hvatningu til aukinnar hreyfingar. Gjafabréfið gildir í fjögur ár sem greiðsla í Miðnæturhlaup Suzuki, Laugavegshlaup og/eða Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka. 

Það borgar sig að skrá tímanlega

Skráning í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka sem fram fer 24.ágúst næstkomandi er nú í fullum gangi. Það ættu flestir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi því í boði eru sex mismunandi vegalengdir.

Skráning hófst 9.janúar og verður hægt að skrá sig þar til daginn fyrir hlaup. Hlauparar eru hinsvegar hvattir til að skrá sig fyrir 3.maí til að fá lægsta mögulega þátttökugjald. Smellið hér til að skoða verðskrá Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 2013.

Innifalið í þátttökugjöldum í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka er meðal annars bolur, sundferð, Barilla pastaveisla, verðlaun o.fl. Smelltu hér til að skrá þig.

Vefurinn reykjavikruns.us verðlaunaður

Íslensku vefverðlaunin voru afhend í Hörpu föstudaginn 8. febrúar. Gaman er að segja frá því að þar hlaut vefurinn reykjavikruns.us tvenn verðlaun en vefurinn fjallar á einkar skemmtilegan hátt um Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka. Vefurinn hlaut verðlaun í flokkunum Besta markaðsherferðin á netinu og í flokknum Frumlegasti vefurinn. 

Íslandsbanki sem hefur verið samstarfsaðili Reykjavíkurmaraþons frá árinu 1997 á frumkvæðið af vefnum og þróaði hann og hannaði í samstarfi við fyrirtækið Takk Takk. Vefurinn sem fór í loftið vorið 2012 var fyrst og fremst ætlaður sem kynning fyrir erlenda hlaupara á hlaupinu, umhverfi þess og um leið Reykjavík en Íslendingum ætti þó ekki að þykja neitt síður skemmtilegt að heimsækja hann. Vefurinn hefur nú að geyma 21 fjölbreytt skref og má segja að hvert skref segi sína sögu. Fyrirhugað er að bæta inn enn fleiri skrefum í aðdraganda Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka 2013 og verður spennandi að sjá þau. 

Á vef Íslandsbanka segir: "Í umsögn dómnefndar kom m.a. fram að viðfangsefnið væri nálgast frá áhugaverðu sjónarhorni og sett fram á einstaklega frumlegan og skemmtilegan hátt. Upplifunin sé fræðandi og skemmtilegt ferðalag með einlægum frásögnum og frjóum innsetningum. 

Um Reykjavíkurmaraþon

Reykjavíkurmaraþon var stofnað árið 1984.  Frá 2003 hefur Reykjavíkurmaraþon verið í umsjón Íþróttabandalags Reykjavíkur (ÍBR) sem eru samtök íþróttafélaganna í Reykjavík.  Á vegum Reykjavíkurmaraþons eru árlega haldin þrjú hlaup: Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka, Laugavegurinn - Ultra Maraþon og Miðnæturhlaup Suzuki. Reykjavíkurmaraþon fagnar 30 ára afmæli árið 2013.