Miðnæturhlaup Suzuki 2013
Miðnæturhlaupið fer fram í 21.sinn þann 24.júní 2013. Framkvæmdin er í höndum Reykjavíkurmaraþons og frjálsíþróttafélaganna í Reykjavík.
Helstu upplýsingar um hlaupið
Tímasetning: 24.júní 2013
Vegalengdir: Hálfmaraþon (21,1 km), 10 km hlaup og 5 km hlaup. Athugið að aðeins 10 km hlaup gildir til stiga í Powerade Sumarhlaupunum.
Staðsetning: Laugardalur í Reykjavík. Ræst á Engjavegi.
Skráning: Forskráning á marathon.is til miðnættis sunnudaginn 23.júní. Einnig skráning á hlaupdegi, 24.júní í Skautahöllinni í Laugardal. Athugið að þátttökugjald hækkar ef skráð er á staðnum. Lokað verður fyrir nýskráningar hálftíma fyrir hlaup. Forskráningargögn verða afhent á hlaupdegi frá kl.16:00. Vinsamlega sækið forskráningar eigi síðar en 20 mínútum fyrir hlaup.
Flögutímataka: Flögutímataka. Skila þarf tímatökuflögum í marki eftir hlaup.
Tímataka: Byssutími gildir til úrslita og röðunar í sæti.
Þátttökugjöld:
| Vegalengd | Forskráning á marathon.is til 23. júní |
Skráning á hlaupdag 24. júní |
||
| Með medalíu | Án medalíu | Með medalíu | Án medalíu | |
| Hálfmaraþon | 3.360 | 2.940 | 4.200 | 3.780 |
| 10 km | 2.520 | 2.100 | 3.360 | 2.940 |
| 5 km | 2.100 | 1.680 | 2.520 | 2.100 |
Athugið að þátttökugjöld verða ekki endurgreidd.
Powerade drykkir og vatn verður í boði Vífilfells auk þess sem allir þátttakendur fá frítt í sund í Laugardalslaug eftir hlaup.
Verðlaun:
- Verðlaun fyrir 1.-3.sæti karla og kvenna ásamt gjafabréfi í Reykjavíkurmaraþon.
- Verðlaun fyrir 1.sæti karla og kvenna í aldursflokkum.
- Þátttökuverðlaun í boði fyrir þau sem velja það í skráningarferlinu
- Útdráttarverðlaun
Aldursflokkar:
| Hálfmaraþon | 10 km hlaup | 5 km hlaup |
| 15 ára og yngri | ||
| 18 ára og yngri | 18 ára og yngri | 16-18 ára |
| 19-39 ára | 19-39 ára | 19-39 ára |
| 40-49 ára | 40-49 ára | 40-49 ára |
| 50-59 ára | 50-59 ára | 50-59 ára |
| 60 ára og eldri | 60 ára og eldri | 60 ára og eldri |
Heimasíða skipuleggjenda: marathon.is
Úrslit og myndir frá Miðnæturhlaupi Suzuki 2012:
Smellið hér til að skoða úrslit hlaupsins og hér til að skoða myndir.
