Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Miðnæturhlaup Powerade 2011 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Miðnæturhlaupið hefur fram á Jónsmessu í Laugardalnum um margra ára skeið. Framkvæmdin hefur verið í höndum Reykjavíkurmaraþons og frjálsíþróttafélaganna í Reykjavík. Í ár - líkt og tvö síðustu ár - eru það frjálsíþróttadeildir Fjölnis og Ármanns sem sjá um framkvæmdina.

Helstu upplýsingar um hlaupið

Tímasetning: 23.júní 2010 kl.22

Vegalengdir: 10 km og 5 km með tímatöku ásamt 3 km skemmtiskokki án tímatöku. Athugið að aðeins 10 km hlaup gildir til stiga á Powerade mótaröðinni.

Staðsetning: Laugardalur í Reykjavík. Ræst á Sundlaugavegi við hlið Laugardalslaugar.

Skráning: Forskráning á marathon.is til kl.17:00 miðvikudaginn 22.júní. Einnig skráning á hlaupdegi, 23.júní, í gamla anddyri Laugardalslaugar frá kl.16:00. Athugið að þátttökugjald í 5 km og 10 km hlaupin hækkar ef skráð er á staðnum. Lokað verður fyrir nýskráningar hálftíma fyrir hlaup.
Forskráningargögn verða afhent utan við gamla anddyri Laugardalslaugar á hlaupdegi frá kl.16:00. Vinsamlega sækið forskráningar eigi síðar en 20 mínútum fyrir hlaup.

Flögutímataka: Í 5 km og 10 km hlaupi verður flögutímataka. Framkvæmdaraðilar áskilja sér rétt til að selja ósóttar forskráningar 15 mínútum fyrir hlaup ef flögur seljast upp. Skila þarf tímatökuflögum í marki eftir hlaup.

Tímataka: Byssutími gildir til úrslita og röðunar í sæti.

Þátttökugjöld:

Vegalengd   Forskráning á marathon.is
fyrir kl.17:00 22.júní
Skráning á staðnum
10 km
m/tímatöku
2.000 kr. 2.500 kr.
5 km
m/tímatöku
2.000 kr. 2.500 kr.
3 km skemmtiskokk
án tímatöku
1.000 kr. 1.000 kr.


Athugið að þátttökugjöld verða ekki endurgreidd.

Powerade drykkir og vatn verður í boði Vífilfells auk þess sem allir þátttakendur fá frítt í sund í Laugardalslaug eftir hlaup.

Verðlaun: 

  • Verðlaunagripir fyrir 1.-3.sæti karla og kvenna í 5 km og 10 km.
  • Verðlaunapeningur fyrir 1.sæti karla og kvenna í aldursflokkum í 5 km og 10 km.
  • Þátttökuverðlaun í boði fyrir alla.
  • Útdráttarverðlaun


Aldursflokkar:

10 km hlaup

18 ára og yngri 
19-39 ára
40-49 ára
50-59 ára
60 ára og eldri

5 km hlaup

15 ára og yngri 
16-18 ára
19-39 ára
40-49 ára
50-59 ára
60 ára og eldri 


Heimasíða skipuleggjenda: marathon.is

Úrslit og myndir frá Miðnæturhlaupi Powerade 2011: Smellið hér til að skoða úrslit hlaupsins og hér til að skoða myndir.

Úrslit og myndir frá Miðnæturhlaupi Powerade 2010: Smellið hér til að skoða úrslit hlaupsins og hér til að skoða myndir.

Úrslit og myndir frá Miðnæturhlaupi Powerade 2009: Smellið hér til að skoða úrslit hlaupsins og hér til að skoða myndir.

 
Borði
Borði
Borði
Borði