| Verðlaun |
|
|
|
| Mánudagur, 18. júlí 2011 22:04 |
|
Laugavegshlaupið er bæði langt og krefjandi hlaup sem einstakt afrek er að ljúka. Allir sem koma í mark fá því að sjálfsögðu verðlaun enda allir sigurvegarar. Þátttökuverðlaunin í ár voru hönnuð af gullsmiðnum Elísabetu Ásbergs. Í ár komu 289 hlauparar í mark og þar með hafa samtals 2.144 hlauparar komið í mark í 15 ára sögu hlaupsins. Einnig eru veitt verðlaun fyrir fljótustu sveitirnar og fljótustu hlauparana í hverjum aldursflokki. Sveita- og flokkaverðlaunin voru gerð af glerlistakonunni Sigrúnu í Bergvík. Þau sem sigruðu í sínum aldursflokkum voru eftirfarandi: Konur 18-29 ára – Elísabet Margeirsdóttir 6:02:42 Karlar 18-29 ára – Garðar Hauksson 5:35:23 Ingólfur S Sveinsson sem sigraði í aldursflokknum 70 ára og eldri karlar er elsti maður sem lokið hefur Laugavegshlaupi en hann varð 72 ára í febrúar síðastliðnum. Eydís Sævarsdóttir, 19 ára, var yngsti þátttakandinn í hlaupinu í ár og því má segja að í Laugavegshlaupinu sé aldur afstætt hugtak. Smellið hér til að skoða nánari úrslit í aldursflokkum. Sveitin "Vinir Asics" sigruðu í sveitakeppni Laugavegshlaupsins 2011. Sveita skipuðu þeir Örvar Steingrímsson, Óskar Ragnar Jakobsson og Kristinn Jóhannsson. Smellið hér til að skoða nánari úrslit sveitakeppninnar. Þrír hlauparar fengu viðurkenningu fyrir að hafa lokið fleiri en 10 Laugavegshlaupum. Það voru þeir Pétur Valdimarsson sem hefur lokið 14 hlaupum, Gottskálk Friðgeirsson sem á 12 hlaup að baki og Höskuldur Kristvinsson sem var að klára sitt 11. Laugavegshlaup. |
















