| Guðbjörg Margrét Björnsdóttir fyrst kvenna |
|
|
|
| Laugardagur, 16. júlí 2011 16:22 |
|
Sigurvegari í kvennaflokki í Laugavegshlaupinu 2011 er Guðbjörg Margrét Björnsdóttir. Guðbjörg hljóp á tímanum 5:50:54 sem er þriggja mínútna bæting á hennar besta tíma og 13. besti tími kvenna frá upphafi. Þetta var sjötta Laugavegshlaupið sem Guðbjörg Margrét lýkur en hún hefur tekið þátt í hlaupinu árlega síðan 2005. Í öðru sæti varð Ósk Vilhjálmsdóttir á 6:01:04. Ósk var að hlaupa sitt fyrsta Laugavegshlaup en á góðan tíma í maraþoni eða frá árinu 2009 eða 3:33 frá 2009. Elísabet Margeirsdóttir varð í 3.sæti á 6:02:42. Elísabet bætti þar með sinn besta tíma í Laugavegshlaupinu frá árinu 2009 um 14 mínútur. Þetta var þriðja Laugavegshlaup Elísabetar. |

















