| Ný veðurspá |
|
|
|
| Fimmtudagur, 15. júlí 2010 22:56 |
|
Samkvæmt veðurspá sem Einar Steindórsson gerði í gær fyrir Laugavegshlaupið er von á hagstæðu veðri á laugardaginn og nú er útlit fyrir að hlýrra verði en áður hafði verið spáð. Vindur verður almennt hægur, mestur um 5 m/s í bakið (NA-átt) þar sem efst er farið nærri Hrafntinnuskeri. Niðri við Álftavatn verður komið hægviðri og heit sólin vermir sandana, þannig að gera má ráð fyrir að hiti verði um 15°C það sem eftir er hlaupsins. Fjallaskúrir verða að teljast fremur ólíklegar og sennilega léttskýjað nánast alla, ef ekki alla hlaupaleiðina. Smellið hér til að skoða veðurspána. Vegna spár um heitt veður er fólki bent á að sérstaklega mikilvægt er að hafa höfuðfat og gott vatnsbelti meðferðis í hlaupinu. Minnt er á að hægt er að fækka fötum í Bláfjallakvísl og senda þangað tösku með fatnað og nesti. Þessi farangur þarf að berast á skrifstofu Reykjavíkurmaraþons að Engjvegi 6 fyrir kl.17 á morgun föstudag. Allar upplýsingar um fatnað og annan útbúnað hér á heimasíðunni eru enn í fullu gildi og hlauparar hvattir til að kynna sér vel reglur hlaupsins hér. |















