| Skráningu lokið - biðlisti fullur |
|
|
|
| Mánudagur, 25. janúar 2010 09:32 |
|
Lokað hefur verið fyrir skráningu í Laugavegshlaupið 17.júlí 2010. Skráning gekk vonum framar og er greinilegt að það eru mjög margir sem hafa áhuga á þessu sérstaka hlaupi. Alltaf eru líkur á því að einhverjir hlauparar hætti við þátttöku þegar nær dregur hlaupi vegna meiðsla eða annarra óviðráðanlegra orsaka og verða þá teknir inn í staðinn þeir sem eru á biðlista. Þeir sem eru búnir að skrá sig á biðlista verða látnir vita um leið og sæti í hlaupið losnar. Biðlistanum fyrir Laugavegshlaupið 17.júlí 2010 hefur verið lokað og er ekki hægt að bæta við fleiri hlaupurum á listann. |















