| Opið fyrir skráningu |
|
|
|
| Þriðjudagur, 05. janúar 2010 12:21 |
|
Skráning í Laugavegshlaupið 17.júlí 2010 opnaði í hádeginu í dag. Smelltu á hnappinn "Skráðu þig í næsta hlaup" hér til hægri á síðunni til að skrá þig. Eftir skráningu sendir skráningakerfið tvo tölvupósta. Annar sýnir „keppnisnúmer/þátttökunúmer. Þeir sem fá svar með keppnisnúmer frá 1 upp í 400 eru staðfestir þátttakendur en þeir sem fá númer 401 og ofar eru á biðlista. Hin kvittunin er fyrir greiðslu. Þeir sem lenda á biðlista greiða einnig en verður að fullu endurgreitt ef þeir komast ekki að. Smellið hér til að skoða upplýsingar um skráningu og verð í Laugavegshlaupið 2010. Á næstu dögum opna "mínar síður" sem er svæði hlauparans hér á vefnum. Þar geta þátttakendur skráð sig inn með notendanafni og lykilorði sem sent er í tölvupósti með staðfestingu á skráningu. Á "mínum síðum" er hægt að breyta ýmsum persónuupplýsingum eins og heimilisfangi, tölvupóstfangi o.fl.
|
















