| Nýtt met í Laugavegshlaupinu |
|
|
|
| Laugardagur, 18. júlí 2009 13:48 |
|
Hlaupið var ræst í Landmannalaugum í morgun kl. 9.00. Als lögðu 321 hlaupari af stað, þar af 59 erlendir þátttakendur. Veðrið var mjög gott í Landmannalaugum, sól öðru hvoru og hægur vindur. Á leiðinni lentu hlauparar í töluverðum snjó. Í Þórsmörk var rigning framan af degi en seinni partinn þegar flestir voru að koma í mark var frábært veður, skýjað og rólegt. Als luku 313 hlaupinu sem er þátttökumet. Þorbergur Ingi Jónsson 26 ára ÍR-ingur kom fyrstur í mark í karlaflokki. Þorbergur kom í mark á tímanum 4 klukkustundir og 20 mínútur sem er nýtt Laugavegs met. Gamla metið átti Bandaríkjamaðurinn Charles Hubbard 4 klukkustundir og 39 mínútur.
Fyrstu karlar í mark 1. Þorbergur Ingi Jónsson, ÍSL, 4:20:32 (1982)
Sigurvegarinn í kvennaflokki Hólmfríður Vala Svavarsdóttir var mjög nálægt því að slá met í kvennaflokki þegar hún hljóp á öðrum besta tíma kvenna frá upphafi, 5:33:10. Hún bætti með hlaupinu í dag persónulegan árangur sinn um hálftíma en í fyrra hljóp hún á 6:03:50. Fyrstu konur í mark 1. Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, ÍSL, 5:33:10 (1974) Nánari úrslit má finna með því að smella hér. Myndir frá hlaupinu eru komnar hér inná vefinn.
|

















