|
Sunnudagur, 31. janúar 2010 00:00 |
|
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010 fer fram laugardaginn 21.ágúst næstkomandi. Skráning í hlaupið er hafin, smelltu hér til að skrá þig.
Líkt og undanfarin ár verður 3 km skemmtiskokk einn af vegalengdunum í Reykjavíkurmaraþoninu 2010 auk þess sem Latabæjarhlaupið fyrir yngstu kynslóðina verður á sínum stað. Boðið er upp fjórar keppnisgreinar í hlaupinu; maraþon (42,2 km), hálfmaraþon (21,1 km), 10 km hlaup og boðhlaup (42,2 km). Boðhlaupið er ný keppnisgrein í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka en hlaupið á maraþonbrautinni og því er vegalengdin 42,2 km eins og maraþonið. Tveir til fjórir skipta á milli sín hlaupaleiðinni og verða skiptistöðvar eftir 10 km, 20 km og 30 km. Ef fjórir hlaupa saman hlaupa þrír hlauparar 10 km og einn 12,2 km. Smelltu hér til að skoða nánari upplýsingar um boðhlaupið í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010.
Þátttökugjaldið hækkar eftir því sem nær dregur hlaupi og því eru áhugasamir hvattir til að skrá sig sem fyrst. Smelltu hér til að skoða verðskrá fyrir Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010. |
|
|
Mánudagur, 07. desember 2009 14:47 |
|
Þrátt fyrir að rúmir átta mánuðir séu í næsta Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka er undirbúningur fyrir hlaupið löngu hafin. Það er að mörgu að hyggja fyrir stóran viðburð sem þennan og margt sem þarf að undirbúa með löngum fyrirvara.
Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010 fer fram laugardaginn 21.ágúst. Hlaupið verður frá miðbæ Reykjavíkur eins og undanfarin 26 ár. Skráning í hlaupið opnar í janúar. Verðskrá er nú þegar hægt að nálgast hér á heimasíðunni.
Undanfarin ár hefur verið boðið uppá fimm vegalengdir í Reykjavíkurmaraþoninu, maraþon, hálfmaraþon, 10 km hlaup, 3 km skemmtiskokk og Latabæjarhlaup fyrir yngstu kynslóðina. Í hlaupinu 2010 verður einni vegalengd bætt við, 42,2 km boðhlaupi. Í raun er ekki um nýja vegalengd að ræða heldur nýja keppnisgrein því hlaupin er sama leið og í maraþoninu en tveir til fjórir geta skipt leiðinni á milli sín. Skiptistöðvar verða eftir 10 km, 20 km og 30 km. |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 20 |