|
Laugardagur, 17. júlí 2010 19:21 |
|
14.Laugavegshlaupinu er lokið. 279 hlauparar fóru af stað úr Landmannalaugum í morgun kl.9 og 267 náðu að ljúka hlaupinu. Veðrið var mjög gott í dag og voru hlauparar ánægðir með færið á leiðinni. Þó var mikið sólskin á hluta leiðarinnar sem gerði hlaupurum erfitt fyrir. Sigurvegari í karlaflokki var Þorlákur Jónsson og í kvennaflokki Helen Ólafsdóttir.
Helen sló brautarmet í kvennaflokki þegar hún kom í mark á tímanum 5:21:12. Gamla metið átti Bryndís Erntsdóttir en það var 5:31:15. Þorlákur var á tímanum 4:48:01 sem er um hálftíma frá metinu sem Þorbergur Ingi Jónsson setti í hlaupinu 2009. Helgi Júlíusson sem var í öðru sæti leiddi hlaupið um tíma en missi Þorberg framúr sér á síðasta hluta leiðarinnar.
Fyrstu karlar
1. Þorlákur Jónsson 4:48:01 2. Helgi Júlíusson 4:49:43 3. Valur Þórsson 4:54:09
Fyrstu konur
1. Helen Ólafsdóttir 5:21:12 2. Hólmfríður Vala Svavarsdóttir 5:28:10 3. Sif Jónsdóttir 5:49:15
Nánari úrslit má finna hér.
Smellið hér til að skoða myndir frá hlaupinu.
|
|
|
Laugardagur, 17. júlí 2010 15:20 |
|
Helen Ólafsdóttir var fyrsta kvenna í mark í Laugavegshlaupinu 2010. Helen kom í mark á tímanum 5:21:12 sem er brautarmet. Gamla metið átti Bryndís Erntsdóttir en það var 5:31:15.
Önnur kona í mark var Hólmfríður Vala Svavarsdóttir, sigurvegarinn frá því í fyrra, á tímanum 5:28:10. Hólmfríður bætti tímann sinn frá því í fyrra og met Bryndísar sem dugði þó ekki til sigurs að þessu sinni.
Sif Jónsdóttir var þriðja kona í mark á tímanum 5:49:15.
 |
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 12 |