Articles

Miðnæturhlaup Powerade

Á morgun þriðjudag fer Miðnæturhlaup Powerade fram í Laugardalnum. Hlaupið er frá Laugardalslaug og hefst hlaupið kl. 22.00. Öllum þátttakendum er boðið í sund eftir hlaupið en verðlaun til sigurvegara verða afhent á laugarbakkanum.

Þetta frábæra hlaup hentar fólki á öllum aldri, bæði byrjendum og lengra komnum og hægt er að velja um þrjár vegalengdir: 3 km skemmtiskokk án tímatöku og 5 og 10 km hlaup með tímatöku.

Forskráningu hér á vefnum lýkur á miðnætti í kvöld en einnig verður hægt að skrá sig í gamla anddyri Laugardalslaugar frá kl. 18.00 á hlaupdegi.

Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um hlaupið.