| Hæðakort |
|
|
|
|
Samkvæmt nákvæmum landfræðilegum mælingum eru hæðarbreytingar á Laugaveginum töluverðar. Hlaupið hefst í Landmannalaugum sem eru um 600 metrar yfir sjávarmál. Hæsti punktur leiðarinnar, Hrafntinnusker, er í tæplega 1100 metra hæð. Endamarkið í Þórsmörk er síðan töluvert lægra eða í um 200 metra hæð yfir sjávarmáli. Meðfylgjandi mynd sýnir yfirlit yfir hæðarbreytingar ásamt stuttum upplýsingum um þjónustuna á leiðinni. Þrátt fyrir að hækkun um 500 metra og lækkun um 900 metra hljómi ekki sem sérstaklega mikill bratti er um miklar hæðarbreytingar að ræða. Á leiðinni er farið mikið upp og niður og hafa margir farið flatt á því að fara of hratt í mestu hækkunina upp í Hrafntinnusker. Samkvæmt reyndum Laugavegshlaupurum sem hafa notað Garmin GPS tæki til mælinga er heildarhækkun u.þ.b. 1900 metrar og heildarlækkun um 2200 metrar. |















