|
Föstudagur, 01. janúar 2010 12:00 |
|
Þegar þú skráir þig í Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka á marathon.is býðst þér í skrefi 4 af 8 að skrá þig sem góðgerðahlaupara fyrir ákveðið góðgerðafélag. Haka þarf í reitinn „Já, ég vil láta heita á mig á vef marathon.is” til að hægt sé að velja góðgerðafélag í fellilistanum. Nafn þitt, vegalengd og valið góðgerðarfélag mun þá birtast á marathon.is og hver sem er getur heitið á þig upphæð að eigin vali.
Ef þú hefur ekki valið góðgerðarfélag þegar þú skráðir þig getur þú farið inná „þínar síður” og tengt þig þeim góðgerðafélögum sem í boði eru. Notandanafn og lykilorð er í tölvupóstinum sem þú fékkst sendan með staðfestingu á skráningu þinni í hlaupið. Í flipanum „aðgerðir“ efst í glugganum getur þú valið „breyta góðgerðarfélagi“. Þá birtast tveir fellilistar þar sem fyrst þarf að velja hlaup (Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010) og síðan góðgerðarfélag að eigin vali. Að lokum er smelt á „vista“. Athugið að ekki er hægt að breyta um góðgerðarfélag eftir að búið er að heita á hlaupara. Séu hinsvegar engin áheit skráð getur viðkomandi farið inná „sínar síður“ og breytt að vild.
Til að láta vini og vandamenn vita af því að þú ætlir að hlaupa fyrir gott málefni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2010 er tilvalið að senda þeim áheitatengilinn þinn. Það gerir þú með því að fara inná „þínar síður“, velja „aðgerðir“ efst í glugganum og síðan „senda áheitatengil“. Þar velur þú hlaup (Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2010) í fellilistanum og skráir síðan inn viðtakendur sem þú vilt senda þinn áheitatengil á. Þitt fólk fær þá sendan tölvupóst með upplýsingum um hvernig það getur heitið á þig.
Smelltu hér til að fara inná „þínar síður“ og skoða hvort að einhver sé búinn að heita á þig eða til að senda vinum og vandamönnum áheitatengilinn þinn.

Smelltu hér til að skoða nánari leiðbeiningar á hvernig hægt er að skrá sig sem góðgerðahlaupara og hvernig hægt er að senda áheitatengil til vina og vandamanna (pdf skjal).
|