Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Heita á hlaupara Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 01. janúar 2010 12:00

Hver sem er getur heitið á þá sem hlaupa fyrir góð málefni í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka upphæð að eigin vali. Þannig er hægt að hvetja hlauparana til dáða og láta jafnframt gott af sér leiða. Hægt er að heita á hlaupara fram að miðnætti mánudaginn 23. ágúst en hlaupið fer fram laugardaginn 21. ágúst.


Auðvelt er að heita á hlaupara hér á heimasíðunni. Það eina sem þarf er greiðslukort og aðgangur að tölvu. Hægt er að skilgreina leitarskilyrði til að afmarka leitarniðurstöður t.d. með því að slá inn fornafn einhvers sem leitað er að eða jafnvel eftirnafn. Ef leitað er án nokkurra leitarskilyrða birtast allir hlauparar sem valið hafa að hlaupa í þágu góðgerðarfélaga og kemur þá fram hvaða góðgerðafélag viðkomandi hyggst hlaupa fyrir. Einnig er hægt að fletta upp nöfnum þeirra góðgerðafélaga sem skráð eru og fylgjast með því hverjir ætla að hlaupa fyrir hvert félag.


Til að skrá áheit þarf að smella á nafn hlaupara sem ætlunin er að heita á. Þá opnast gluggi þar sem hægt er að slá inn upphæð að eigin vali. Upphæðin rennur síðan til þess góðgerðarfélags sem viðkomandi hlaupari valdi þegar hann skráði sig í hlaupið.


Smellið hér til að heita á hlaupara (skráning áheita opnar þegar nær dregur hlaupi).



Smellið hér til að skoða leiðbeiningar, skref fyrir skref, um skráningu áheita á hlaupara (pdf skjal).

 
Borði
Borði
Borði