| Arndís Ýr og Þorbergur Ingi sigurvegarar |
|
|
|
| Föstudagur, 26. ágúst 2011 15:13 |
|
Sigurvegarar á Powerademótaröðinni sumarið 2011 eru þau Arndís Ýr Hafþórsdóttir og Þorbergur Ingi Jónsson. Arndís Ýr sigraði stigakeppni kvenna á Powerademótaröðinni 2011 með yfirburðum því hún sigraði í öllum 10 km hlaupum sumarsins. Í öðru sæti var Hrönn Guðmundsdóttir og í því þriðja Veronika Sigríður Bjarnardóttir. Stigakeppnin í karlaflokki var tvísýnni en Þorbergur Ingi tryggði sér sigur með því að sigra í síðasta hlaupi mótaraðarinnar, Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Í öðru sæti var Þórólfur Ingi Þórsson og því þriðja Haraldur Tómas Hallgrímsson. Hlauparar í þremur efstu sætunum í karla- og kvennaflokki fengu verðlaunin sín afhent í Lækjargötunni eftir Reykjavíkurmaraþonið síðasta laugardag. |












