| Síðasta hlaupið á Powerademótaröðinni 2011 framundan |
|
|
|
| Laugardagur, 13. ágúst 2011 23:25 |
|
Fimmta og síðasta hlaupið á Powerademótaröðinni 2011, Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka, er framundan. Hlaupið fer fram laugardaginn 20.ágúst næstkomandi og er skráning í fullum gangi. Forskráningu lýkur á marathon.is kl.16:00 miðvikudaginn 17.ágúst. Smellið hér til að finna nánari upplýsingar um hlaupið. Í stigakeppni Powerademótaraðarinnar eru Arndís Ýr Hafþórsdóttir og Þorbergur Ingi Jónsson með forystu. Arndís Ýr, sem hefur sigrað í öllum hlaupum Powerademótaraðarinnar í sumar, er með mjög örugga forystu í kvenna flokki og hefur nú þegar tryggt sér sigur. Í karlaflokki eiga hinsvegar fjórir hlauparar möguleika á að sigra stigakeppnina en það eru þeir Þorbergur Ingi, Kári Steinn, Þórólfur Ingi og Haraldur Tómas. Í stigakeppni aldursflokka eru þau Tinna Líf og Ingvar með forystu í flokki 18 ára og yngri, Arndís Ýr og Þorbergur Ingi í flokki 19-39 ára, Hrönn og Sigurður Böðvar í flokki 40-49 ára, Gauti og Ásdís í 50-59 ára flokknum og Ragna María og Jóhann í flokki 60 ára og eldri. Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um stigakeppni Powerademótaraðarinnar 2011. |











