Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Met þátttaka og brautarmet í Ármannshlaupinu Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 13. júlí 2011 10:03

Ármannshlaupið fór fram í Laugardalnum og nágrenni í gærkveldi. Metþátttaka var í hlaupinu sem er 10 km en 276 komu í mark. Góð stemning var í Laugardalnum þrátt fyrir að vindurinn væri ekki alveg með hlaupurum í liði á annars hraðri og skemmtilegri braut hlaupsins.

Kári Steinn Karlsson úr Breiðabliki sigraði í karlaflokki á nýju brautarmeti 30:48. Fyrra met átti Haraldur Tómas Hallgrímsson 34:42 og var því um að ræða 4 mínútna bætingu. Kári Steinn er heldur betur að standa sig vel þessa dagana því nýlega sló hann brautarmetið í Miðnæturhlaupinu. Í öðru sæti var Þorbergur Ingi Jónsson úr ÍR á 33:22 og í þriðja sæti Carl Wisted á 34:28. Þeir Þorbergur og Carl voru einnig á góðum tímum og undir gamla brautarmetinu líkt og Kári Steinn.

Í kvennaflokki sigraði Arndís Ýr Hafþórsdóttir úr Fjölni á tímanum 38:23 sem er aðeins 3 sekúndum frá brautarmeti Írisar Önnu Skúladóttur. Arndís Ýr hefur þar með sigrað í öllum hlaupum Powerade mótaraðarinnar sumarið 2011 og hefur því nú þegar, þrátt fyrir að einu hlaupi sé enn ólokið, tryggt sér sigur í stigakeppni kvenna. Í öðru sæti var María Kristín Gröndal úr FH á 38:46 og í því þriðja Verónika Bjarnadóttir Fjölni á 39:40.

Smellið hér til að skoða úrslit úr Ármannshlaupinu 2011 og hér til að skoða myndir.

Næsta hlaup á Powerademótaröðinni 2011 er Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka. Það er 10 km hlaupið sem gildir til stiga á mótaröðinni. Skráning í hlaupið er í fullum gangi á marathon.is/reykjavikurmaraton.

 
Borði
Borði
Borði
Borði