Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Powerade mótaröðin
Sigurvegarar í aldursflokkakeppni Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 26. ágúst 2011 15:33

Á Powerademótaröðinni 2011 var keppt í stigakeppni karla og kvenna auk stigakeppni í fimm aldursflokkum karla og kvenna. Stigahæstu hlaupararnir í hverjum aldursflokki fá gjafabréf frá Vífilfelli sem berast til þeirra í pósti næstu daga. Þau eru eftirfarandi:


18 ára og yngri

Tinna Líf Jörgensdóttir og Ingvar Hjartarson

19-39 ára
Arndís Ýr Hafþórsdóttir og Þorbergur Ingi Jónsson

40-49 ára
Hrönn Guðmundsdóttir og Sigurður Böðvar Hansen

50-59 ára
Ásdís Guðnadóttir og Gauti Höskuldsson

60 ára og eldri
Ragna María Ragnarsdóttir og Jóhann Karlsson

Smellið hér til að skoða nánari upplýsingar um stigakeppni á Powerademótaröðinni 2011.


Einnig voru dregin út gjafabréf frá Vífilfelli á meðal allra þátttakenda í hlaupum Powerademótaraðarinnar í sumar. Þau heppnu eru: Auður Anna Kristjánsdóttir, Árný Inga Pálsdóttir, Einar Þór Hólmkelsson, Finnbogi Gylfason, Kristinn Guðmundsson, Kristín Alda Jörgensdóttir, Melkorka Árný Kvaran, Pétur Einar Pétursson, Ragna Dóra Rúnarsdóttir og Sæmundur Ólafsson. Gjafabréfin berast vinningshöfum með pósti á næstu dögum.

 
Arndís Ýr og Þorbergur Ingi sigurvegarar Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Föstudagur, 26. ágúst 2011 15:13

Sigurvegarar á Powerademótaröðinni sumarið 2011 eru þau Arndís Ýr Hafþórsdóttir og Þorbergur Ingi Jónsson.

Arndís Ýr sigraði stigakeppni kvenna á Powerademótaröðinni 2011 með yfirburðum því hún sigraði í öllum 10 km hlaupum sumarsins. Í öðru sæti var Hrönn Guðmundsdóttir og í því þriðja Veronika Sigríður Bjarnardóttir.

Stigakeppnin í karlaflokki var tvísýnni en Þorbergur Ingi tryggði sér sigur með því að sigra í síðasta hlaupi mótaraðarinnar, Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka. Í öðru sæti var Þórólfur Ingi Þórsson og því þriðja Haraldur Tómas Hallgrímsson.

Hlauparar í þremur efstu sætunum í karla- og kvennaflokki fengu verðlaunin sín afhent í Lækjargötunni eftir Reykjavíkurmaraþonið síðasta laugardag.

 

 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 19
Borði
Borði
Borði
Borði