|
Ungmennafélagið Fjölnir hefur um árabil haldið hlaup á heimasvæði sínu í Grafarvogi. Í ár verður hlaupið haldið í 23.sinn.
Helstu upplýsingar um hlaupið
Tímasetning: 19.maí 2011 kl. 20:00
Vegalengdir: 10 km og 1,8 km skemmtiskokk. Athugið að aðeins 10 km hlaup gildir til stiga á Powerade mótaröðinni. Smellið hér til að skoða kort af hlaupaleiðum.
Staðsetning: Hlaupið er ræst frá Fjölnisvellinum (við Grafarvogslaug) og komið í mark þar.
Skráning: Tekið verður á móti forskráningum á hlaup.com fram að miðnætti miðvikudaginn 18. maí. Afhending númera og skráning í anddyri sundlaugar Grafarvogs kl. 18:00 - 19:30 á hlaupadegi.
Þátttökugjald: 1.500 kr fyrir 10 km hlaup gegn netskráningu en 2.000 ef skráð er samdægurs á staðnum. Fyrir skemmtiskokk er þátttökugjald 700 kr, en hver fjölskylda greiði að hámarki 2.500 kr.
Greiðsla: Vinsamlegast millifærið rétta upphæð fyrir netskráningar inn á reikning Fjölnis 114-26-347, kt. 6901933379 og sýnið greiðslukvittun við afhendingu númera. Einnig er tekið á móti greiðslum á staðnum.
Verðlaun:
- Farandbikarar fyrir 1. sæti karla og kvenna í 10 km hlaupi.
- Verðlaunagripir fyrir fyrstu 3 sæti karla og kvenna í 10 km hlaupi.
- Fyrsta sæti í hverjum aldurflokki karla og kvenna í 10 km hlaupi og skemmtiskokki hlýtur verðlaunapening.
- Þátttökupeningar fyrir 15 ára og yngri
- Útdráttarverðlaun
Aldursflokkar: 10 km hlaup - 18 ára og yngri, 19-39 ára, 40-49 ára og 50-59 ára og 60 ára og eldri. Skemmtiskokk - 10 ára og yngri, 11-12 ára, 13-14 ára og 15 ára og eldri.
Drykkir í boði Vífilfells. Meðlæti og frítt í sund að hlaupi loknu.
Heimasíða skipuleggjenda: fjolnir.is
Úrslit úr Fjölnishlaupinu 2011: hlaup.com
Úrslit úr Fjölnishlaupinu 2010: hlaup.com og hlaup.is
.JPG)
|