Reykjavíkurmaraþon ReykjavíkurmaraþonLaugavegurinn LaugavegurinnMiðnæturhlaup MiðnæturhlaupPowerade Powerade
Verðlaun 2012 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Allir þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka fá verðlaunapening þegar þeir koma í mark. Fyrstu þrír karlar og konur í 10 km hlaupi, hálfmaraþoni og maraþoni fá einnig verðlaunagripi fyrir sinn árangur. Þá fá fyrstu þrjú lið í mark í 42,2 km boðhlaupinu einnig verðlaunagripi. Þessi verðlaun eru veitt í Lækjargötu á hlaupdegi.


Verðlaunafé

Líkt og undanfarin ár eru veitt peningaverðlaun til fyrstu þriggja hlauparanna í heilu og hálfu maraþoni. Fyrstu þrír Íslendingarnir í þessum vegalengdum fá einnig peningaverðlaun.

Vegalengd 1.sæti 2.sæti 3.sæti
Heilt maraþon 100.000 70.000 40.000
Heilt maraþon - Íslendingar   50.000 35.000 20.000
Hálft maraþon 70.000 40.000 20.000
Hálft maraþon - Íslendingar 40.000 25.000 15.000

 

Verðlaunafé er veitt fyrir fyrstu þrjá í kvenna- og karlaflokki. Allar upphæðir eru í íslenskum krónum. Verðlaunafé er samtals 1.050.000 kr.


Brautarmet
Sé brautarmet slegið í maraþoni eða hálfmaraþoni er greiddur bónus, 50.000 kr. í hálfmaraþoni og 100.000 kr. í maraþoni. Þessi verðlaun verða veitt í Lækjargötu á hlaupdegi. Brautarmet í maraþoni karla á Ceslovas Kundrotas (LTU) 2:17:06 og maraþoni kvenna Angaharad Mair (GBR) 2:38:47. Benjamin Serem (KEN) á brautarmetið í hálfmaraþoni karla 1:04:09 en Martha Ernstdóttir (ISL) á brautarmet kvenna 1:11:40.


Powerade mótaröðin
10 km hlaupið í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka er hluti af Powerade mótaröðinni. Mótaröðin samanstendur af fimm hlaupum sem haldin hafa verið í Reykjavík í sumar. Reykjavíkurmaraþonið er síðasta hlaupið á mótaröðinni og þrír stigahæstu hlaupararnir fá afhend verðlaun í Lækjargötunni á hlaupdegi.


Útdráttarverðlaun
Allir þátttakendur eiga möguleika á að vinna útdráttarverðlaun í boði Asics. Útdráttarverðlaun eru afhent keppendum þegar þeir koma í mark.


Sveitakeppni
Verðlaun eru veitt fyrstu þremur sveitunum í vegalengdum 10 km, 21,1 km og 42,2 km. Þau sem eiga þrjá bestu tímana í sveitinni vinna til verðlauna. Sjá nánar um sveitakeppni hér. Verðlaun í sveitakeppni verða afhent á skrifstofu Reykjavíkurmaraþons, Engjavegi 6 (við hliðina á Laugardalshöll), frá og með mánudegi 20.ágúst.


Aldursflokkar
Aldursflokkaverðlaun verða afhent á skrifstofu Reykjavíkurmaraþons, Engjavegi 6 (við hliðina á Laugardalshöll), frá og með mánudegi 20.ágúst. Þetta er gert til að tryggja að úrslit liggi örugglega rétt fyrir áður en verðlaunin eru afhent.





Veitt eru aldursflokkaverðlaun fyrir fyrsta til þriðja sæti í eftirfarandi flokkum karla og kvenna.


Í 10 km eru flokkarnir
12-15 ára
16-18 ára
19-39 ára
40-49 ára
50-59 ára
60-69 ára
70 ára og eldri

Í 21,1 km eru flokkarnir
15-19 ára
20-39 ára
40-49 ára
50-59 ára
60-69 ára
70 ára og eldri

Í heilu maraþoni eru flokkarnir
18-39 ára
40-49 ára
50-59 ára
60-69 ára
70 ára og eldri

 
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði