| Vegalengdir 2012 |
|
|
|
|
Í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka sem fram fer þann 18.ágúst 2012 verður boðið uppá sex vegalengdir. Athugið að aldurstakmark er í lengri vegalengdirnar. Ekki er mælt með því að yngri en 12 ára taki þátt í 10 km hlaupinu.
Boðhlaupið er hlaupið á maraþonbrautinni og er því 42,2 km eins og maraþonið. Tveir til fjórir skipta á milli sín hlaupaleiðinni og eru skiptistöðvar eftir 10 km, 20 km og 30 km. Ef fjórir hlaupa saman hlaupa þrír hlauparar 10 km og einn 12,2 km. Smelltu hér til að skoða nánari upplýsingar um boðhlaupið í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka 2012.
|






















